7. gr. orðast svo:
Bráðanotkun halón 1301 er heimil í slökkvikerfum í eftirfarandi tilvikum:
a. | í loftförum til að verja áhafnarklefa, hreyfilshús, lestarrými og þurrrými og til varnar eldsneytistönkum, |
b. | til að verja mannað rými og vélarrými í flutningaskipum sem eru eldri en frá árinu 2001 og flytja eldfima vökva og/eða lofttegundir, |
c. | til að verja mannað rými í fjarskipta- og stjórnunarstöðvum hers eða annarra sem skipta sköpum fyrir þjóðaröryggi, og eru eldri en frá árinu 2001, |
d. | til að verja mannað rými og vélarrými í herökutækjum og herskipum. |
Bráðanotkun halón 1211 er heimil í eftirfarandi tilvikum:
a. | í handslökkvitækjum og föstum slökkvibúnaði fyrir vélar til nota um borð í loftförum, |
b. | í slökkvitækjum, sem slökkvilið notar við frumslökkvistarf ef það skiptir sköpum fyrir öryggi manna, |
c. | í slökkvitækjum hersins sem notuð eru á fólk, |
d. | til að verja mannað rými og vélarrými í herökutækjum og herskipum. |
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 29. gr. laga nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, með síðari breytingum, og 4. tölul. 5. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á ákvörðun framkvæmdastjórnar EB 2003/160/EB, sem vísað er til í tl. 21aa III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 46/2004, þann 24. apríl 2004.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.