1. gr.
Reglugerð þessi gildir um leyfisskyldar frístundaveiðar, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
2. gr.
Aðilum sem reka ferðaþjónustu og hyggjast nýta við þann rekstur báta til frístundaveiða er skylt að sækja um leyfi til Fiskistofu fyrir hvern bát sem fyrirhugað er að nota í því skyni. Skilyrði útgáfu leyfis er að rekstraraðili báts hafi leyfi Ferðamálastofu, sem gefið er út með stoð í 8. gr. laga nr. 73/2005, um skipan ferðamála.
Við veitingu leyfa til frístundaveiða koma aðeins til greina bátar sem hafa haffærisskírteini og skrásettir eru á skipaskrá Siglingastofnunar Íslands eða sérstaka skrá stofnunarinnar fyrir báta undir 6 metrum. Skulu eigendur þeirra og útgerðir fullnægja þeim skilyrðum til að stunda veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands sem kveðið er á um í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri og í lögum um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands.
3. gr.
Frístundaveiðar er einungis heimilt að stunda með sjóstöng og handfærum án sjálfvirknibúnaðar. Leyfi til veiðanna eru tvenns konar:
1. Leyfi til að veiða 7 fiska af kvótabundnum fisktegundum á hvert handfæri eða sjóstöng dag hvern og reiknast sá afli ekki til aflamarks viðkomandi báts. Ekki er heimilt að hafa um borð í báti fleiri en 7 sjóstangir og/eða færarúllur samtímis. Óheimilt er að selja eða fénýta á annan hátt afla sem fæst við veiðar samkvæmt leyfi þessu.
2. Leyfi til veiða sem takmarkast af aflamarki eða krókaaflamarki viðkomandi báts. Allur afli þessara báta skal veginn í samræmi við gildandi reglur um vigtun og skráningu sjávarafla. Um afla þessara báta gilda ekki ákvæði laga nr. 24/1986, um skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins. Ekki skal leitað staðfestingar Verðlagsstofu skiptaverðs vegna flutnings aflamarks til þessara báta. Heimilt er að selja og fénýta á annan hátt þann afla sem fæst við veiðar sem heimilar eru samkvæmt þessum tölulið.
Ekki er skylt að halda afladagbækur vegna afla báta er stunda frístundaveiðar.
Leyfi til frístundaveiða skulu veitt til eins fiskveiðiárs í senn og er einungis heimilt að veita báti leyfi annaðhvort samkvæmt 1. tl. eða 2. tl. Ekki er heimilt innan sama fiskveiðiárs að stunda fiskveiðar í atvinnuskyni á báti sem fengið hefur leyfi til frístundaveiða. Þó er Fiskistofu heimilt að veita bátum tímabundin leyfi til frístundaveiða sem gildi fyrir tímabilið 1. maí - 31. ágúst, enda stundi þeir ekki veiðar í atvinnuskyni innan þess tímabils.
4. gr.
Rekstraraðili frístundaveiðibáts, sem ekki hefur aflaheimildir, skal mánaðarlega skila til Fiskistofu skýrslu, í því formi sem Fiskistofa ákveður, yfir veiddan afla. Skila skal sérstakri skýrslu fyrir afla hvers báts. Í aflaskýrslu frístundaveiðibáts skal færa eftirfarandi upplýsingar:
1. Nafn og kennitölu rekstraraðila.
2. Nafn báts.
3. Skipaskrárnúmer.
4. Löndunarstað.
5. Löndunardag.
6. Fisktegund.
7. Fjölda fiska og áætlaða þyngd þeirra.
8. Fjölda sjóstanga og/eða færarúlla.
Rekstraraðili skal eigi síðar en 15. hvers mánaðar senda Fiskistofu skýrslur vegna afla undanfarandi mánaðar.
5. gr.
Rekstraraðili báts skal með sannanlegum hætti kynna fyrir áhöfn báts reglur um takmarkanir sem kunna að vera á veiðum á þeim svæðum þar sem líklegt má telja að báturinn stundi frístundaveiðar og ennfremur reglur um bann við brottkasti afla og reglur um meðferð afla.
6. gr.
Brot gegn reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt 8. mgr. 6. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
7. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 6. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 25. júní 2009.
Jón Bjarnason.
Sigurgeir Þorgeirsson.