1. gr.
Við 15. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:
e) | Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/2066 frá 19. desember 2018 um vöktun á losun gróðurhúsalofttegunda og skýrslugjöf um losunina samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB og um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 601/2012, sem vísað er til í tl. 21apg, III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 320/2019, þann 13. desember 2019, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, XX. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5 frá 30. janúar 2020, bls. 444-536. |
2. gr.
Innleiðing.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/2066 frá 19. desember 2018 um vöktun á losun gróðurhúsalofttegunda og skýrslugjöf um losunina samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB og um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 601/2012.
3. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. mgr. 13. gr., 6. mgr. 18. gr., 9. mgr. 19. gr. og 7. mgr. 21. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 28. maí 2020.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Sigríður Auður Arnardóttir.