Prentað þann 14. apríl 2025
53/2008
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 297/2003, um arðsfrádrátt.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað orðanna "75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt" kemur: 90/2003, um tekjuskatt.
- Í stað orðanna "2. og 4. tölul. 1. mgr. 2. gr." kemur: 2. tölul. 1. mgr. 2. gr.
- Við greinina bætist: , sbr. XII. kafla laga nr. 2/1995, um hlutafélög, og laga nr. 138/1994, um einkahlutafélög. Sama gildir um fjárhæð sem félög í sömu félagaformum, sem skattskyld eru skv. 7. tölul. 3. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt og eru heimilisföst í öðru aðildarríki á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa fengið greidda í arð.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:
- Á eftir orðinu (OECD) í 1. tölul. 2. mgr. kemur: eða aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins.
- Í stað "75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt" í 4. tölul. 2. mgr. kemur: 90/2003, um tekjuskatt.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 9. tölul. 31. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Fjármálaráðuneytinu, 10. janúar 2008.
F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.
Ingibjörg H. Helgadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.