Prentað þann 14. apríl 2025
Breytingareglugerð
49/2008
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 213/2001, um skattalega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað orðanna "41. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt" í 3. mgr. kemur: 39. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.
- Í stað orðanna "sbr. 2. mgr." í 1. málsl. 4. mgr. kemur: sbr. 3. mgr.
- 2. málsl. 4. mgr. fellur brott.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Fjármálaráðuneytinu, 10. janúar 2008.
F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.
Ingibjörg H. Helgadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.