483/2017
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 808/2014 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á tilteknu fóðri og matvælum frá tilteknum þriðju löndum vegna mengunaráhættu af völdum aflatoxína. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 3. tölul, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2106 frá 1. desember 2016 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 884/2014 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á kryddum frá Eþíópíu, jarðhnetum frá Argentínu og heslihnetum frá Aserbaísjan og um breytingu á sérstökum skilyrðum fyrir innflutningi á þurrkuðum fíkjum og heslihnetum frá Tyrklandi og jarðhnetum frá Indlandi.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2106 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Reglugerð þessi sem er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. maí 2017.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Ólafur Friðriksson.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)