1. gr.
Reglugerð þessi tekur til hörpudisksveiða íslenskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands. Veiðisvæði hörpudisks eru sjö. Aðeins skipum sem hafa aflamark í hörpudiski, á viðkomandi svæði, er heimilt að stunda hörpudisksveiðar á því svæði.
Veiðisvæði hörpudisks eru þessi:
2. gr.
Með mál sem kunna að rísa út af brotum á ákvæðum reglugerðar þessarar skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, ásamt síðari breytingum.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, ásamt síðari breytingum. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 702/2004, um hörpudisksveiðar. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 16. maí 2017.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Erna Jónsdóttir.