445/2016
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 207/2010 um gjald fyrir dvöl á sjúkrahóteli. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað orðanna "kr. 1.200 á dag" í 1. mgr. 1. tölul. kemur: 1.440 kr. á dag.
- Í stað orðanna "kr. 18.000 á dag" í 2. málsl. 1. mgr. 2. tölul. kemur: 19.900 kr. á dag á tímabilinu janúar til og með apríl svo og september til og með desember og 25.870 kr. á tímabilinu maí til og með ágúst.
- Orðin "nr. 1079/2009" í 1. málsl. 2. mgr. 2. tölul. falla brott.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. tölul. 1. mgr. og 3. mgr. 29. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, öðlast þegar gildi.
Velferðarráðuneytinu, 26. maí 2016.
Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.
Vilborg Ingólfsdóttir.