1. gr.
Við 8. gr. bætast tveir nýir stafliðir; u- og v-liður, sem orðast svo:
u) |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 847/2012 frá 19. september 2012 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi kvikasilfri) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 193/2013 frá 9. nóvember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64 frá 14. nóvember 2013, 2013/EES/64/29, bls. 267-270. |
|
v) |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 348/2013 frá 17. apríl 2013 um breytingu á XIV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 192/2013 frá 9. nóvember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64 frá 14. nóvember 2013, 2013/EES/64/09, bls. 123-127. |
2. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirfarandi gerðum:
a) |
Reglugerð (ESB) nr. 847/2012 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi kvikasilfri) við reglugerð (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)). |
|
b) |
Reglugerð (ESB) nr. 348/2013 um breytingu á XIV. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)). |
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í stafliðum c. og d. 1. tölul. 1. mgr. 11. gr., sbr. 1. mgr. 26. gr. og 1. mgr. 27. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 28. apríl 2014.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.