380/2008
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 30, 12. janúar 2005, um friðun hrygningarþorsks og skarkola á vetrarvertíð. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Frá og með 15. apríl til kl. 10.00 30. apríl eru allar veiðar óheimilar á svæðum A til C en á tímabilinu 15. apríl til kl. 10.00 15. maí á svæði D.
-
Á Ísafjarðardjúpi innan línu sem dregin er frá Galtarvita í Straumnesvita.
-
Frá Hornbjargsvita austur um að Stokksnesi innan 3ja sjómílna frá fjörumarki meginlandsins.
-
Innan 3ja sjómílna frá fjörumarki Grímseyjar.
-
Á Húnafirði innan línu sem dregin er milli 65°41,23´N - 20°40,41´V (Hindisvík) og 66°01,28´N - 20°25,96´V (Kálfshamarsnes).
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 16. apríl 2008.
F. h. r.
Þórður Eyþórsson.
Hrefna Gísladóttir.