Veflestur er þjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

356/2003

Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar (VI). - Brottfallin

1. gr.

(PDF skjal)Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1386/2001 frá 5. júní 2001 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1408/71 um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og fjölskyldum þeirra sem flytjast milli aðildarríkja og reglugerð (EBE) nr. 574/72 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EBE) nr. 1408/71 skal gilda á Íslandi, sbr. (PDF skjal)ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 36/2002 frá 19. apríl 2002 um breytingu á VI. viðauka (Félagslegt öryggi) við EES-samninginn. Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.
(PDF skjal)Reglugerðin (EB) nr. 1386/2001 fjallar að hluta til um atvinnuleysistryggingar, greiðslur í fæðingarorlofi, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá félagsmálaráðuneytinu er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um atvinnuleysistryggingar og greiðslur í fæðingarorlofi samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Í reglugerð fjármálaráðuneytisins er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum.


2. gr.

(PDF skjal)Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1386/2001 og (PDF skjal)ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 36/2002, sbr. 1. gr., sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 29, 13. júní 2002, bls. 14-15, er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.


3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 66. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 6. maí 2003.

Jón Kristjánsson.
Davíð Á. Gunnarsson.

Prenta reglugerð

Þetta vefsvæði byggir á Eplica