1. gr.
Nýr stafliður bætist við 15. gr, svohljóðandi:
c) |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 206/2014 frá 4. mars 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 601/2012 að því er varðar stuðul fyrir hnatthlýnunarmátt annarra gróðurhúsalofttegunda en koldíoxíðs (Global Warming Potential - GWP), sem vísað er til í tölulið 21apg, III. kafla, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 61/2014, frá 4. apríl 2014, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, XX. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í fylgiskjali við reglugerð þessa. |
2. gr.
Innleiðing.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 206/2014 frá 4. mars 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 601/2012 að því er varðar stuðul fyrir hnatthlýnunarmátt annarra gróðurhúsalofttegunda en koldíoxíðs (Global Warming Potential - GWP), sem vísað er til í tölulið 21apg, III. kafla, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 61/2014, frá 4. apríl 2014.
3. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. mgr. 13. gr., 6. mgr. 18. gr., 9. mgr. 19. gr. og 7. mgr. 21. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 10. apríl 2014.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Hugi Ólafsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)