1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 121/2009 frá 5. desember 2009 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 202/2009 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 600/2005 að því er varðar notkun efnablöndu með Bacillus licheniformis DSM 5749 og Bacillus subtilis DSM 5750 í fóðurblöndur sem innihalda lasalósíðnatríum.
2. gr.
Ofangreind reglugerð framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Um aukefni samkvæmt ofangreindri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) vísast að öðru leyti til 13. gr. reglugerðar nr. 340/2001 og 3. viðauka sömu reglugerðar.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 7. apríl 2010.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)