1. gr.
4. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Ráðherra skipar fimm menn í stjórn ÁTVR til ársloka 2009 og jafnmarga til vara. Ráðherra skipar formann og varaformann stjórnar og ákveður þóknun stjórnarmanna.
2. gr.
Í stað orðsins "tveir" í 6. gr. reglugerðarinnar kemur: meirihluti.
3. gr.
4. málsliður 7. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Forstjóri gerir starfsáætlun og rekstraráætlun á hverju ári og kynnir hana fyrir stjórninni.
4. gr.
20. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Verð á áfengi frá vínbúð skal ákveðið þannig að við afhendingarverð frá birgjum skal bætt álagningu. Álagning Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á áfengi með 22% eða lægra hlutfall af vínanda að rúmmáli skal vera 18% en álagning áfengis með meira en 22% hlutfall af vínanda að rúmmáli skal vera 12%.
Við ákvörðun á áfengisinnihaldi vísast til laga um gjald af áfengi og tóbaki, nr. 96/1995, með síðari breytingum.
Álagning Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins skal lögð á innkaupsverð vöru. Með innkaupsverði er átt við að varan sé komin í vöruhús ÁTVR með öllum kostnaði sem á hana fellur, svo sem verði frá framleiðanda, flutningi, öllum innflutningsgjöldum s.s. áfengisgjaldi og álagi heildsala.
5. gr.
Við 23. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Álagning Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á tóbak skal vera 18%. Álagning ÁTVR er lögð á innkaupsverð tóbaks. Með innkaupsverði er átt við að varan sé komin í vöruhús ÁTVR með öllum kostnaði sem á hana fellur, svo sem verði frá framleiðanda, flutningi, öllum innflutningsgjöldum s.s. tóbaksgjaldi og álagi heildsala.
6. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í lögum nr. 63/1969, um verslun með áfengi og tóbak, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármálaráðuneytinu, 19. mars 2009.
F. h. r.
Maríanna Jónasdóttir.
Þórður Reynisson.