1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 26. október 2007, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 211/2013 frá 11. mars 2013 um kröfur varðandi útgáfu vottorða vegna innflutnings til Sambandsins á spírum og fræjum sem ætluð eru til framleiðslu á spírum.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 211/2013 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Matvælastofnun hefur eftirlit samkvæmt 6. gr. laga nr. 93/1995 með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt.
4. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli.
6. gr.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. mars 2014. |
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, |
Halldór Runólfsson. |
Eggert Ólafsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)