Veflestur er þjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá
Sjávarútvegsráðuneyti

225/2003

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 365, 15. maí 2002, um þorskfisknet. - Brottfallin

1. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Lágmarksmöskvastærð þorskfiskneta, sem heimilt er að nota til þorskfiskveiða, er 5 og 1/2 þumlungur (139,7 mm).

Frá 1. maí 2003 er óheimilt að nota net til þorskfiskveiða sem er með stærri möskva en 9 þumlungar (228,6 mm).

Frá 1. maí 2004 er óheimilt að nota net til þorskfiskveiða sem er með stærri möskva en 8 þumlungar (203,3 mm).

Frá 1. janúar 2005 er óheimilt að nota net til þorskfiskveiða sem er með stærri möskva en 7 og 1/2 þumlungur (190,5).


2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 26. mars 2003.

Árni M. Mathiesen.
Jón B. Jónasson.

Prenta reglugerð

Þetta vefsvæði byggir á Eplica