1. gr.
4. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Viðmiðunarfjárhæðir vegna skyldu til útboðs á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt 16. og 61. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/17/EB, sbr. reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 1336/2013 um breytingu á viðmiðunarfjárhæðum í tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 2004/17/EB og 2004/18/EB, skulu vera sem hér segir:
64.438.880 kr. þegar um er að ræða vöru- og þjónustusamninga,
805.486.000 kr. þegar um er að ræða verksamninga,
64.438.880 kr. þegar um er að ræða hönnunarsamkeppni.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2341 frá 15. desember 2015 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/17/EB að því er varðar beitingu viðmiðunarfjárhæða við útboð og gerð samninga, sem vísað er til í XVI. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 29/2016, þann 5. febrúar 2016.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 3. mgr. 7. gr. og 78. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup, tekur þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 29. febrúar 2016.
F. h. r.
Sigurður H. Helgason.
Hrafn Hlynsson.