1. gr.
Við 5. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Heimilt er að setja búnað á markað sem er tilgreindur í 1. dálki í viðauka A.1 og sem hefur verið færður úr viðauka A.2, og framleiddur fyrir 4. desember 2014 í samræmi við aðferðir við gerðarsamþykki sem voru í gildi fyrir þann dag innan Evrópska efnahagssvæðisins, og koma honum fyrir um borð í skipi skráðu innan Evrópska efnahagssvæðisins til 4. desember 2016.
2. gr.
Í stað viðauka A kemur nýr viðauki A sem er hluti tilskipunar framkvæmdastjórnarinnar 2013/52/ESB frá 30. október 2013 um breytingu á tilskipun ráðsins 96/98/EB um búnað um borð í skipum.
3. gr.
Innleiðing.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2013/52/ESB um breytingu á tilskipun ráðsins 96/98/EB um búnað um borð í skipum, sem vísað er til í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 48/2014 frá 8. apríl 2014, sem birt var í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49, 28. ágúst 2014, bls. 23, að því er varðar tilskipun 2013/52/ESB, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans. Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2013/52/ESB birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23, 10. apríl 2014, bls. 407.
4. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 4. mgr. 1. gr. laga nr. 47/2003, um eftirlit með skipum, og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 17. febrúar 2015.
Ólöf Nordal.
Ragnhildur Hjaltadóttir.