1. gr.
2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Á árinu 2025 er íslenskum skipum heimilt að veiða alls 224 tonn af bláuggatúnfiski miðað við afla upp úr sjó. Af þeim heimildum er 200 tonnum úthlutað til veiða með línu og 24 tonnum vegna áætlaðs meðafla íslenskra skipa á bláuggatúnfiski.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 14. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997, ákvæðum 3., 4., 6., 7., 8., 18. og 19. gr. laga um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, nr. 151/1996, og ákvæðum 16. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 10. janúar 2025.
Hanna Katrín Friðriksson
atvinnuvegaráðherra.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.