1. gr.
Í stað orðsins "Íbúðalánasjóðs" í 1. gr. og sama orðs hvarvetna annars staðar í reglugerðinni kemur, í viðeigandi beygingarmynd: Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 23. gr. reglugerðarinnar:
Í stað "4.749.000 kr." kemur: 5.532.000 kr.
Í stað "1.187.000 kr." kemur: 1.383.000 kr.
Í stað "6.649.000 kr." kemur: 7.746.000 kr.
3. gr.
Í stað "5.126.000 kr." í 1. mgr. 24. gr. reglugerðarinnar kemur: 5.971.000 kr.
4. gr.
Heiti reglugerðarinnar breytist og verður: Reglugerð um lánveitingar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til sveitarfélaga, félaga eða félagasamtaka sem ætlaðar eru til byggingar eða kaupa á leiguhúsnæði.
5. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 3. mgr. 37. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og skal gilda frá og með 1. janúar 2020 um tekju- og eignamörk íbúa leiguíbúða sem lánað hefur verið til skv. 1. mgr. 37. gr. laga um húsnæðismál.
Félagsmálaráðuneytinu, 23. janúar 2020.
Ásmundur Einar Daðason.
Gunnhildur Gunnarsdóttir.