REGLUGERÐ
um holræsagerð í Kópavogshreppi.
1. gr.
Þegar hreppurinn hefur látið leggja holræsi í veg, götu eða annað opið svæði, er þeim húseigendum, er þar eiga hús að eða í námunda við og í holræsið geta náð, skylt að leggja á sinn kostnað ræsi frá húsinu, er flytji allt skolp frá því út í aðalræsið ásamt rigningarvatni, ef hægt er að koma því við. Vanræki einhver að láta gera holræsi innan hæfilegs frests, sem hreppsnefnd setur, getur hún látið vinna verkið á kostnað húseiganda.
2. gr.
Öll framkvæmdastörf, sem holræsakerfi hreppsins varða, svo sem viðhald, endurbætur og umsjón alla, annast hreppsnefnd eða maður, sem hún felur það.
Þóknun fyrir þau störf og einnig fyrir reikningshalds eða annað vegna holræsagerðarinnar ákveður hreppsnefnd.
Engum er heimilt að leggja ræsi í aðalræsi, nema að fengnu leyfi ofangreindra aðila, og er mönnum skylt að hlíta fyrirmælum þeirra um gerð og legu ræsis og annað það, er máli skiptir i sambandi við það.
3. gr.
Kostnaður allur við aðalholræsakerfið greiðist úr hreppssjóði. Til þess að standast þann kostnað, ber hverjum húseiganda, sem á hús að eða í námunda við götu, veg eða opið svæði, sem holræsi er lagt i, að greiða tengigjald um leið og hann tengir ræsi við aðalræsi, kr. 750.00 miðað við hús með einni íbúð. Hækkar gjald þetta um kr. 375.00 fyrir hverja íhúð í húsi umfram eina.
Nú eru hús sambyggð, en aðskilin með brunagöflum, og telst þá sérstakt hús sá hluti, sem er milli brunagafla. Ef fleiri íbúðir en ein eru í húsi og íbúðir séreign, sl:al heildarupphæð tengigjaldsins skiptast milli eigenda íbúðanna hlutfallslega eftir tölu íbúðanna, er þeir eiga.
Auk tengigjalds greiði hver húseigandi í holræsagjald til hreppsins kr. 150.00 árlega af hverju húsi, en kr. 75.00 á íbúð í húsi umfram eina, og enn fremur 5 af þúsundi af fasteignamati húsanna.
4. gr.
Hið árlega holræsagjald, sem og tengigjaldið, getur hreppsnefnd hækkað eða 1ækkað um allt að 50% án staðfestingar ráðuneytisins.
5. gr.
Húseigandi ber ábyrgð á greiðslu tengigjalds og holræsagjalds gagnvart hreppsnefnd. Kröfur, sem hreppsnefnd kann að öðlast samkv. 1. og 3. gr., má taka lögtaki á kostnað gjaldanda, og eru gjöld þessi tryggð með lögveði í húseigninni i næstu 2 ár eftir gjalddaga með forgangsveði fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.
Gjalddagi holræsagjalds er 1. apríl ár hvert.
6. gr.
Brot gegn reglugerð þessari varða sektum allt að kr. 1000.00, nema þyngri refsing liggi við að lögum.
Með mál út af reglugerð þessari skal farið sem almenn lögreglumál.
Reglugerð þessi, sem hreppsnefnd Kópavogshrepps hefur samið og samþykkt og gerð er samkv. lögum nr. 15 20. júní 1923, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Félagsmálaráðuneytið, 16. febrúar 1955
Steingrímur Steinþórsson.
Hjálmar Vilhjálmsson.