1. gr.
Við 21. gr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi:
f) |
Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2014/9/ESB frá 18. desember 2013 um breytingu á ákvörðunum 2010/2/ESB og 2011/278/ESB hvað varðar þá geira og undirgeira sem teljast vera í umtalsverðri áhættu á kolefnisleka, sem vísað er til í töluliðum 21alb og 21alc, III. kafla, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 141/2014, frá 27. júní 2014, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af reglugerð þessari, XX. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 25. september 2014, 2014/EES/54/60, bls. 588-591. |
2. gr.
Innleiðing.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2014/9/ESB frá 18. desember 2013 um breytingu á ákvörðunum 2010/2/ESB og 2011/278/ESB hvað varðar þá geira og undirgeira sem teljast vera í umtalsverðri áhættu á kolefnisleka, sem vísað er til í töluliðum 21alb og 21alc, III. kafla, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 141/2014, frá 27. júní 2014.
3. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 11. mgr. 10. gr., 7. mgr. 11. gr. og 4. mgr. 12. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 5. janúar 2015.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Hugi Ólafsson.