1. gr.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 631/2004 frá 31. mars 2004 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1408/71 um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og aðstandendum þeirra sem flytjast á milli aðildarríkja og reglugerð ráðsins (EBE) nr. 574/72 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EBE) nr. 1408/71, að því er varðar jöfnun réttinda og einföldun málsmeðferðar skal gilda á Íslandi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 101/2004 frá 9. júlí 2004 um breytingu á VI. viðauka (Félagslegt öryggi) við EES-samninginn. Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.
Reglugerðin (EB) nr. 631/2004 fjallar að hluta til um atvinnuleysistryggingar, greiðslur í fæðingarorlofi, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá félagsmálaráðuneytinu nr. 13/2006 er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um atvinnuleysistryggingar og greiðslur úr fæðingarorlofi samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Í reglugerð fjármálaráðuneytisins nr. 12/2006 er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum.
2. gr.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 631/2004 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 101/2004, sbr. 1. gr., sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 65, 23. desember 2004, bls. 19, er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 66. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 5. janúar 2006.
Jón Kristjánsson.
Davíð Á. Gunnarsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)