1. gr.
Við 6. gr. bætist nýr málsliður sem orðast svo:
Þó skal kaupandi afla sem kaupir afla sem boðinn er upp samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, senda skýrslur skv. 4. og 5. gr. vegna þess afla eigi síðar en 5 virkum dögum eftir að viðskipti áttu sér stað.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, laga nr. 55/1998, um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða, með síðari breytingum, og lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum, öðlast gildi 25. janúar 2010 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 12. janúar 2010.
Jón Bjarnason.
Sigurgeir Þorgeirsson.