REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um vörubifreiðar og sendibifreiðar,
sem notaðar eru til leiguaksturs og takmarkanir á fjölda þeirra,
nr. 121/1990, ásamt síðari breytingum.
1. gr.
11. tölul. 7. gr. orðist svo:
Á félagssvæði Vörubílstjórafélagsins Múla, sem er Dalvík, Ólafsfjörður, Svarfaðardals og Árskógshreppur. Hámarkstala er 10 vörubifreiðar.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum um leigubifreiðar, nr. 77/1989, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Samgönguráðuneytið, 8. júlí 1991.
Halldór Blöndal.
Ólafur S. Valdimarsson.