1. gr.
Gildissvið.
Reglugerð þessi tekur til vinnustaðanáms á framhaldsskólastigi, nánar tiltekið til starfsþjálfunar á vinnustað og náms á námssamningi og til heimilda mennta- og menningarmálaráðherra til þess að fela aðila utan ráðuneytis umsýslu með náms- og/eða starfsþjálfunarsamningum.
2. gr.
Skilgreiningar.
Merking orða í reglugerð þessari er sem hér segir:
Námssamningur: Samningur milli nemanda og fyrirtækis eða stofnunar um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað. Námssamningar skulu vera í samræmi við gildandi kjarasamning fyrir nemendur í viðkomandi starfsnámi.
Starfsþjálfunarsamningur: Samningur milli skóla og fyrirtækis eða stofnunar um að veita nemanda tilskilda þjálfun og menntun í samræmi við 28. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla.
3. gr.
Vinnuvernd.
Ekki má gera námssamning við yngri einstakling en 16 ára. Í starfsgreinum þar sem vinnuhættir, vinnuskilyrði, vinnutími eða önnur atriði gera slíkt nauðsynlegt getur mennta- og menningarmálaráðherra áskilið hærra aldursmark eða ef önnur lög kveða svo á um.
Við gerð samnings við einstakling undir 18 ára skal gæta ákvæða X. kafla laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Foreldri eða forráðamaður ólögráða nemanda staðfestir samþykki sitt fyrir námssamningi með undirritun sinni á samninginn.
4. gr.
Umsjón með gerð námssamninga.
Framhaldsskólar hafa eftirlit með að nemendur þeirra leggi stund á vinnustaðanám sem áskilið er í námskrá og að gerðir séu viðeigandi náms- og/eða starfsþjálfunarsamningar. Námssamningur skal staðfestur af umsýsluaðila innan mánaðar frá undirskrift samningsaðila.
Mennta- og menningarmálaráðherra getur falið skóla eða öðrum aðila að annast umsýslu með gerð og staðfestingu námssamninga og eftirlit með þeim. Sömu aðilar hafa þá með höndum ógildingu sömu samninga ef til þess kemur.
5. gr.
Efni náms- og starfsþjálfunarsamninga.
Í starfsþjálfunarsamningi, sbr. 2. gr. gera skóli og fyrirtæki eða stofnun með sér samkomulag um starfsþjálfun nemenda skólans sem fer fram á viðkomandi vinnustað. Í samningnum er kveðið á um inntak og fyrirkomulag þeirrar starfsþjálfunar sem þar er veitt. Samningurinn er gerður í tvíriti og heldur hvor samningsaðili sínu eintaki.
Form námssamnings, sbr. 2. gr. er ákveðið af þeim aðila sem hefur með höndum staðfestingu námssamninga og leggur sami aðili jafnframt til eyðublöð fyrir þá. Í námssamning skal skrá upphaf náms, áætluð námslok svo og skóla þar sem nám er stundað. Námssamningurinn skal einnig kveða á um réttindi og skyldur vinnuveitanda og nemanda og markmið vinnustaðanáms. Samningurinn er gerður í fjórriti og skal hvor samningsaðili halda sínu eintaki, skóli einu eintaki og umsýsluaðili einu eintaki. Námssamningi skal fylgja námsáætlun nemandans staðfest af skóla þar sem nám er stundað.
6. gr.
Heimild til að meta reynslu til styttingar á námstíma.
Við gerð námssamnings er heimilt að meta nám eða starfsreynslu sem nemandi hefur aflað sér áður en samningurinn var gerður og getur talist nýtast í hinu nýja námi. Komi til þess að slíkt mat fari fram skal liggja fyrir yfirlýsing fyrirtækis um vinnutíma, í hverju starfið hefur verið fólgið, og staðfesting lífeyrissjóðs eða skattstjóra um að tilskilin gjöld hafi verið innt af hendi. Verktakavinna kemur ekki til álita við mat á vinnu nemenda fyrir gerð námssamnings. Kveði námskrá á um sérstök skilyrði fyrir staðfestingu námssamnings, svo sem um tiltekið undirbúningsnám áður en samningur er gerður, ganga þau framar þegar svo ber undir.
7. gr.
Skyldur fyrirtækis eða stofnunar.
Fyrirtæki eða stofnun skuldbindur sig með gerð námssamnings til að veita nemanda kennslu í greininni og sjá svo um að hann hafi að námstíma loknum hlotið tilskilda hæfni í helstu verkefnum, verkþáttum og vinnubrögðum er viðkomandi starfsgrein tekur til og hafi öðlast leikni í meðferð, hirðingu og beitingu þeirra efna, áhalda og tækja sem notuð eru í starfsgreininni. Þá skal þess gætt að nemandi hafi tamið sér virðingu fyrir starfi sínu og faglega sýn á þau viðfangsefni sem starfið tekur til.
8. gr.
Skilyrði.
Til að fyrirtækjum eða stofnunum sé heimilt að taka nemendur á námssamning skulu eftirtalin skilyrði uppfyllt:
9. gr.
Fyrirtæki og stofnanir sem bjóða vinnustaðanám.
Starfsgreinaráð halda skrá yfir fyrirtæki og stofnanir sem uppfylla skilyrði sett samkvæmt reglugerð þessari og í almennum ákvæðum aðalnámskrár um vinnustaðanám.
Starfsgreinaráð geta komið á fót nemaleyfisnefndum til þess að fara yfir umsóknir einstakra fyrirtækja eða meistara um heimild til að taka nemendur í starfsþjálfun eða á námssamning og afgreiða þær. Mennta- og menningarmálaráðherra setur nemaleyfisnefndum erindisbréf.
10. gr.
Reynslutími.
Fyrstu 12 vikur námstíma samkvæmt námssamningi skoðast sem reynslutími, eða fast hlutfall af lengd vinnustaðanáms þegar starfsþjálfun samkvæmt námskrá er styttri en 30 vikur. Þó getur reynslutími aldrei verið lengri en sem nemur þriðjungi heildarlengdar starfsþjálfunar á vinnustað, enda hefjist starfsþjálfun um það leyti sem samningurinn er gerður. Hvenær sem er á reynslutímanum getur hvor samningsaðili um sig slitið námssamningi án þess að tilgreina ástæður.
11. gr.
Heimild til þess að útvega annan námsstað.
Uppfylli fyrirtæki, eða stofnun, ekki lengur ákvæði 7. gr. skal það útvega nemandanum annan námsstað í starfsgreininni í samráði við umsýsluaðila.
Heimilt er að fela fleiri en einu fyrirtæki að annast starfsþjálfun nemanda þegar þannig ber við að fyrirtæki hefur ekki nægilega fjölþætt verkefni til að unnt sé að kenna starfið fullkomlega innan veggja eins fyrirtækis.
12. gr.
Slit.
Aðilar námssamnings geta slitið honum:
Ef svo er ástatt sem greinir í stafliðum a og c en fyrirtæki eða nemi slíta ekki námssamningi getur umsýsluaðili námssamnings slitið samningi að undangenginni athugun.
Aðilum er heimilt að slíta námssamningi ef þeir koma sér saman um það. Þegar samningi er slitið skal það jafnan tilkynnt umsýsluaðila námssamninga skriflega.
Verði endurtekin slit á námssamningum af hálfu fyrirtækis eða fyrirtæki verði sannanlega uppvíst að því að vanrækja kennslu missir fyrirtækið rétt sinn til þess að annast kennslu nemenda á vinnustað.
Hafi nemandi áður stundað nám hjá öðrum aðila, en slitið námssamningi við hann sbr. c- og d-lið 1. mgr. skal sá tími er hann vann hjá honum dragast frá fullum námstíma hjá seinni samningsaðila í sömu starfsgrein.
13. gr.
Málsmeðferð við slit samnings.
Sé námssamningi slitið eftir að reynslutími er liðinn skal umsýsluaðili skrá ástæðu samningsslitanna. Óski aðili einhliða eftir riftun námssamnings þegar reynslutími er liðinn skal það gert skriflega og mótaðila samnings jafnframt gefinn kostur á að tjá sig um riftunarbeiðnina. Uppsagnarfrestur samnings í slíkum tilvikum skal alla jafna vera einn mánuður.
Ágreiningi nemanda og fyrirtækis er kann að rísa vegna samningsslita skal vísað til umsýsluaðila námssamninga, sem leiðbeinir nemanda um mögulega málsmeðferð og leiðir til að ljúka starfsþjálfun hans.
14. gr.
Málskot.
Takist ekki að leysa ágreining um réttindi og skyldur nemanda eftir hefðbundnum leiðum má skjóta honum til mennta- og menningarmálaráðherra. Einnig verður ágreiningi um rétt fyrirtækis til þess að annast kennslu nemenda skotið til mennta- og menningarmálaráðherra.
15. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt ákvæði 28. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla, öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 697/2009 um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað.
Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 26. ágúst 2011.
Svandís Svavarsdóttir.
Ásta Magnúsdóttir.