1. gr.
Innheimtumenn ríkissjóðs.
Innheimtumenn ríkissjóðs eru:
tollstjóri á höfuðborgarsvæðinu,
sýslumaðurinn á Vesturlandi,
sýslumaðurinn á Vestfjörðum,
sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra,
sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra,
sýslumaðurinn á Austurlandi,
sýslumaðurinn á Suðurlandi,
sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum og
sýslumaðurinn á Suðurnesjum skv. lögum nr. 50/2014, um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði.
2. gr.
Hlutverk innheimtumanna ríkissjóðs.
Innheimtumenn ríkissjóðs annast innheimtu skatta og gjalda hver í sínu umdæmi. Með sköttum og gjöldum er átt við hvers konar skatta og gjöld sem lögð eru á lögum samkvæmt.
3. gr.
Sérstakt hlutverk tollstjóra.
Auk þeirra verkefna sem tollstjóra eru falin skv. 2. gr. annast tollstjóri eftirtalin verkefni sem lúta að innheimtu skatta og gjalda á landsvísu:
4. gr.
Kyrrsetningar.
Tollstjóri annast á landsvísu kyrrsetningarmál að beiðni skattrannsóknarstjóra á grundvelli 6. mgr. 113. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, 41. gr. a. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, 31. gr. a. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda og 20. gr. a. laga nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur.
5. gr.
Alþjóðlegt samstarf skattinnheimtuyfirvalda.
Tollstjóri annast móttöku og umsjón beiðna erlendra ríkja um aðstoð við innheimtu skatta og gjalda á grundvelli alþjóðlegra samninga á landsvísu.
Tollstjóri hefur umsjón með útsendingu beiðna um aðstoð við innheimtu skatta og gjalda til erlendra ríkja fyrir hönd innheimtumanna ríkissjóðs.
6. gr.
Vanskilainnheimta á landsvísu.
Tollstjóri annast vanskilainnheimtu eftirtalinna skatta og gjalda á landsvísu: skuldabréf gefin út á grundvelli laga nr. 24/2010, sektir skattrannsóknarstjóra ríkisins, fésektir ársreikningaskrár ríkisskattstjóra, umsýslu- og eftirlitsgjald ríkisskattstjóra, árgjald fyrir tíðninotkun, gjöld þjóðskrár og leyfisgjöld útvarpsréttarnefndar.
7. gr.
Áætlanagerð og úrvinnsla tölfræðiupplýsinga.
Tollstjóri skal í upphafi hvers árs gera áætlun um innheimtu skatta og gjalda á landsvísu og skal hún send fjármála- og efnahagsráðuneyti, ásamt upplýsingum um innheimtuárangur síðasta árs.
Tollstjóri skal á hverju tveggja mánaða tímabili taka saman tölfræðiupplýsingar um innheimtuárangur einstakra innheimtuembætta og senda innheimtumönnum ríkissjóðs og fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Tollstjóri skal þróa mælikvarða og aðferðir við framsetningu tölfræðigagna um innheimtu skatta og gjalda.
8. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. og 3. mgr. 111. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar öðlast gildi 1. janúar 2015. Önnur ákvæði öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 2. desember 2014.
F. h. r.
Guðmundur Árnason.
Maríanna Jónasdóttir.