1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45/2016, frá 19. mars 2016, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2295 frá 9. desember 2015 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2074/2005 að því er varðar skrár yfir samþykktar starfsstöðvar í matvælageiranum. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 19, frá 31. mars 2016, bls. 314.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. maí 2016.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Ólafur Friðriksson.
Eggert Ólafsson.