1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 11/2015, frá 26. febrúar 2015, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 923/2014 frá 25. ágúst 2014 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun álsetlitarefna úr ríbóflavíni (E 101) og kókíníli, karmínsýru, karmíni (E 120) í tilteknum matvælaflokkum og viðaukanum við reglugerð (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar nákvæmar skilgreiningar á ríbóflavíni (E 101). Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16, frá 19. mars 2015, bls. 851.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.
5. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. apríl 2015. |
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, |
Ólafur Friðriksson. |
Eggert Ólafsson.