Prentað þann 29. mars 2025
958/2014
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 907/2014 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 206/2010 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknum dýrum og nýju kjöti til Evrópusambandsins, og um kröfur varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir.
1. gr.
a. Á eftir 1. tl. 1. gr. kemur nýr töluliður, sem verður 2. tl., svohljóðandi, og breytast númer töluliða í samræmi við það:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 810/2010 frá 15. september 2010 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 206/2010 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknum dýrum og nýju kjöti til Evrópusambandsins, og um kröfur varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir.
b. 2. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 206/2010, eins og henni er breytt með reglugerðum sem nefndar eru í töluliðum 2 til 11 í 1. gr., er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa. Jafnframt eru í fylgiskjali birtar framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar sem nefndar eru í töluliðum 12 til 16 í sömu grein.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
3. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. október 2014.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Ólafur Friðriksson.
Eggert Ólafsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.