Prentað þann 1. apríl 2025
1177/2016
Reglugerð um gildistöku og breytingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1194/2012, frá 12. desember 2012, um kröfur varðandi visthönnun stefnuvirkra ljósapera, ljósdíóðupera og tengds búnaðar.
1. gr.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir lið 26g í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2013, frá 14. júní 2013, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1194/2012, frá 12. desember 2012, um kröfur varðandi visthönnun stefnuvirkra ljósapera, ljósdíóðupera og tengds búnaðar.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir liðum 6g, 10, 26h og 33 í IV. kafla í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 313/2015, frá 11. desember 2015, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1428 frá 25. ágúst 2015 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 244/2009 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun óstefnuvirkra ljósapera til heimilisnota og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 245/2009 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun flúrpera án innbyggðrar straumfestu, háþrýstra úrhleðslupera og varðandi straumfestur og lampa fyrir slíkar ljósaperur og um niðurfellingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/55/EB og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1194/2012 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun stefnuvirkra ljósapera, ljósdíóðupera og tengds búnaðar.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1194/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37/2013, 27. júní 2013, bls. 197.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1428 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18/2016, 31. mars 2016, bls. 105.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 16. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 6. desember 2016.
F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
Ingvi Már Pálsson.
Erla Sigríður Gestsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.