1. gr.
Eigendum skipa er heimilt að láta þorsk, ýsu og steinbít, í skiptum fyrir einstakar aðrar tegundir sem viðkomandi skip hefur aflahlutdeild í, enda séu skiptin jöfn í þorskígildum talið. Útgerð skal senda Fiskistofu tilkynningu þar að lútandi á tímabilinu 16. til 30. september 2015 vegna tegunda sem úthlutað er um fiskveiðiáramót og eigi síðar en viku eftir að birt hefur verið ákvörðun ráðherra um úthlutun tegunda sem fram fer á öðrum tíma.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. september 2015.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Erna Jónsdóttir.