Prentað þann 6. jan. 2025
1071/2010
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 440/2009, um tímabundna aukna endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði og frístundahúsnæði auk annars húsnæðis sem er alfarið í eigu sveitarfélaga.
1. gr.
Í stað "1. janúar 2011" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. janúar 2012.
2. gr.
Í stað "1. janúar 2011" í 4. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. janúar 2012.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í ákvæði til bráðabirgða, XV, við lög nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Fjármálaráðuneytinu, 28. desember 2010.
F. h. r.
Maríanna Jónasdóttir.
Sóley Ragnarsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.