REGLUGERÐ
um
héraðsskjalasöfn.
1. gr.
Héraðsskjalasafn er sjálfstæð skjalavörslustofnun sem lýtur
faglegu eftirliti Þjóðskjalasafns Íslands. Stjórnarnefnd Þjóðskjalasafns
Íslands getur heimilað sveitarstjórnum að stofna héraðsskjalasafn.
Héraðsskjalasafn getur tekið til eins eða fleiri sveitarfélaga. Standi fleiri
en eitt sveitarfélag að héraðsskjalasafni skal gera um starfsemi þess og
rekstur starfssamning, sem bera skal undir þjóðskjalavörð til staðfestingar.
Skal þess gætt að fullnægjandi húsnæði sé fyrir hendi og fjárhagslegur rekstur
héraðsskjalasafns tryggður og þess getið í samstarfssamningi.
2. gr.
Héraðsskjalasafn, sem fengið hefur heimild stjórnarnefndar
Þjóðskjalasafns Íslands til starfsemi sinnar, starfar innan marka þess
sveitarfélags eða þeirra sveitarfélaga sem héraðsskjalasafnið tekur til
samkvæmt starfssamningi um rekstur þess.
3. gr.
Héraðsskjalasöfn skulu annast söfnun, innheimtu og
varðveislu skjala, skrásetja þau og gera aðgengileg notendum og á allan hátt
leitast við að varðveita og efla þekkingu á sögu síns umdæmis, sbr. 3. gr. laga
nr. 66/ 1985 um hlutverk Þjóðskjalasafns Íslands.
4. gr.
Í héraðsskjalasöfnum skal m.a. varðveita skjalasöfn þeirra
embætta, stofnana og félaga sem hér greinir, sbr. og 5. gr. um
afhendingarskyldu:
1. Bæjarstjórna,
2. sýslu- og héraðsnefnda,
3. byggðasamlaga,
4. hreppsnefnda,
5. hreppstjóra,
6. bæjar-, sýslu-, héraðs- og hreppsfyrirtækja,
7. sáttanefnda,
8. forðagæslumanna,
9. yfir- og undirskattanefnda,
10. undirfasteignamatsnefnda,
11. skólanefnda,
12. barnaverndarnefnda,
13. héraðsfunda,
14. sóknarnefnda,
15. sjúkrasamlaga,
16. búnaðarsambanda,
17. ræktunarsambanda,
18. hreppabúnaðarfélaga,
19. búfjárræktarfélaga,
20. skógræktarfélaga,
21. íþrótta- og ungmennafélaga,
22. lestrarfélaga,
23. slysavarna- og björgunarfélaga,
24. leikfélaga og annarra menningarfélaga, þ.á.m.
kvenfélaga.
Héraðsskjalasöfn skulu leita eftir því að fá til varðveislu
skjöl frá einstaklingum, félögum og fyrirtækjum á safnsvæðinu.
5. gr.
Eftirgreindir aðilar skulu afhenda héraðsskjalasafni skjöl
sín til varðveislu: bæjar- og sveitarstjórnir, sýslu- og héraðsnefndir,
byggðasamlög og hreppstjórar á safnsvæðinu. Ennfremur skal afhenda á
héraðsskjalasafn skjöl allra embætta, stofnana og fyrirtækja á vegum þessara
aðila eða annarrar starfsemi á vegum þeirra. Einnig skjöl allra félaga og
samtaka, sem njóta verulegra styrkja af opinberu fé og starfa eingöngu innan
umdæmis héraðsskjalasafnsins.
6. gr.
Skilaskyld skjöl skal afhenda héraðsskjalasafni eigi síðar
en þegar þau hafa náð 30 ára aldri. Miða skal við síðustu innfærslu í bók eða
síðasta bréf afgreidds máls. Héraðsskjalavörður getur stytt þennan frest eða
lengt í einstökum tilvikum ef sérstakar ástæður mæla með því.
7. gr.
Forstöðumenn skilaskyldra stofnana bera ábyrgð á
skjalavörslu og skulu hlíta fyrirmælum Þjóðskjalasafns Íslands um skráningu,
flokkun og frágang skjala. Skjalavistunarkerfi og skjalageymslur skulu samþykkt
af Þjóðskjalasafni áður en þau eru tekin í notkun. Þjóðskjalasafn getur falið
héraðsskjalasafni framkvæmd þessara mála á safnsvæðinu.
8. gr.
Afhendingarskyldum aðilum er óheimilt að ónýta nokkurt
skjal í skjalasöfnum sínum nema heimild Þjóðskjalasafns komi til eða samkvæmt
sérstökum reglum sem settar verða um ónýtingu skjala. Óski skilaskyldur aðili
eftir því að eyða skjölum úr skjalasafni sínu skal hann ásamt héraðsskjalaverði
gera rökstuddar skriflegar tillögur þar að lútandi til stjórnarnefndar
Þjóðskjalasafns.
9. gr.
Stjórn héraðsskjalasafns, bæjarstjórn eða héraðsnefnd eftir
því sem við á ræður starfsfólk héraðsskjalasafns. Forstöðumaður
héraðsskjalasafns, héraðsskjalavörður, annast innheimtu skjala til safnsins,
hefur á hendi daglegan rekstur þess og sér um að starfsemin sé í samræmi við
gildandi laga- og reglugerðarákvæði. Héraðsskjalavörður skal halda aðfangabók
og skrá í hana jafnóðum og skjöl berast safninu. Um hver áramót skal hann gefa
þjóðskjalaverði og rekstraraðilum skýrslu um það sem bæst hefur í safnið á
árinu og um aðra markverða starfsemi þess.
10. gr.
Héraðsskjalavörður skal fylgja sömu reglum og gilda í
Þjóðskjalasafni um aðgang að skjölum og meðferð skjala í lestrarsal.
Þjóðskjalasafn skal tilkynna héraðsskjalasöfnum um þær reglur og breytingar á
þeim. Óski héraðsskjalasafn að setja sérstakar reglur um afnot og aðgang skal
leita staðfestingar þjóðskjalavarðar. Brjóti gestir gegn löglega settum
fyrirmælum er heimilt að banna þeim afnot af safninu.
11. gr.
Afhendingarskyldir aðilar eiga rétt á að fá léð skjöl eða
ljósrit skjala, sem þeir hafa afhent, úr héraðsskjalasafni, þurfi þeir á þeim
að halda við störf sín. Önnur útlán skjala eru að jafnaði óheimil nema til
opinberra skjalasafna, bókasafna og rannsóknarstofnana ef aðstaða er þar til að
varðveita skjöl tryggilega að mati héraðsskjalavarðar. Skal viðtakandi gefa
skriflega yfirlýsingu um að hann beri ábyrgð á skjölunum og skilum þeirra innan
ákveðins tíma.
12. gr.
Falli héraðsskjalasafn í vanhirðu eða séu ekki lengur fyrir
hendi þau skilyrði sem voru forsenda fyrir leyfi til stofnunar safnsins skal
þjóðskjalavörður vekja athygli stjórnar safnsins á því sem aflaga er talið fara
og æskja úrbóta. Fáist ekki úr bætt þrátt fyrir endurteknar áskoranir skal
þjóðskjalavörður, með samþykki stjórnarnefndar Þjóðskjalasafns, láta flytja
safngögnin í Þjóðskjalasafn á kostnað þeirra sem að héraðsskjalasafninu stóðu.
13. gr.
Héraðsskjalasöfn skulu njóta árlegs rekstrarstyrks úr
ríkissjóði samkvæmt því sem ákveðið er í fjárlögum hverju sinni.
14. gr.
Reglugerð þess er sett samkvæmt 14. gr., sbr. 17. gr. laga
nr. 66/1985, um Þjóðskjalasafn Íslands, og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur
úr gildi reglugerð nr. 61/1951, um héraðsskjalasöfn.
Menntamálaráðuneytið,
19. maí 1994.
Ólafur G.
Einarsson.
Árni Gunnarsson.
Word útgáfa af reglugerð