1. gr.
Tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk.
Tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2014 nema 0,99% af álagningarstofni útsvars það ár, auk framlaga úr Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, vegna sölu og leigu eigna sem nýttar eru í þjónustu við fatlað fólk. Skulu tekjurnar renna í sérstaka deild innan Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Við skil á staðgreiðslu útsvars samkvæmt lögum nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda skulu Jöfnunarsjóði gerð skil á sínum hluta, sbr. 1. mgr. Fjársýsla ríkisins skal sjá um útreikning á tekjum þessum og skipta innheimtri staðgreiðslu hvers mánaðar milli ríkis, sveitarfélaga og Jöfnunarsjóðs. Tekjur sjóðsins skulu reiknaðar af þeim stofni sem staðgreiðsla hvers mánaðar er greidd af.
Ennfremur skal Fjársýsla ríkisins við álagningu sjá um útreikning á hlutdeild Jöfnunarsjóðs í útsvari af þeim tekjum sem skattlagðar eru eftir á. Fjársýsla ríkisins skal, í uppgjöri staðgreiðslu sveitarfélaga við álagningu útsvars, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, taka tillit til hlutdeildar Jöfnunarsjóðs og gera sjóðnum skil á henni.
Til viðbótar þeim tekjum Jöfnunarsjóðs á árinu 2014, sem tilgreindar eru í 1. mgr., eru til ráðstöfunar á árinu óráðstöfuð framlög frá fyrra ári vegna NPA (notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar) og vegna breytingakostnaðar.
2. gr.
Framlög.
Jöfnunarframlög vegna þjónustu við fatlað fólk skiptast á árinu 2014 í: Almenn framlög til þjónustusvæða og sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk, framlög vegna notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA), framlög vegna breytingakostnaðar, framlög í Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga svo og sérstök viðbótarframlög.
Framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk eru óháð öðrum framlögum sjóðsins.
Jöfnunarsjóður sendir sveitarfélögum upplýsingar um áætluð framlög ársins 2014 og greiðsludreifingu þeirra eftir því sem við verður komið. Framlög skulu greidd mánaðarlega. Framlög skulu endurskoðuð innan ársins í samræmi við breytingar á áætluðum tekjum sjóðsins, sbr. 1. gr. og á grundvelli nýrra upplýsinga frá þjónustusvæðum/sveitarfélögum.
3. gr.
Almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2014.
I. hluti: Skipting ráðstöfunarfjármagns.
Áætluðum ráðstöfunartekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2014, að frádregnum framlögum sem veitt eru til miðlægra verkefna er tengjast yfirfærslunni, framlagi í Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og sérstökum viðbótarframlögum, skal skipta milli sveitarfélaga sem mynda þjónustusvæði, sbr. lög nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks, eða einstakra sveitarfélaga með eftirfarandi hætti, sbr. samkomulag ríkis og sveitarfélaga um yfirfærslu málaflokksins frá 23. nóvember 2010:
Áætluð framlög ársins 2014 skal endurreikna eigi síðar en í mars 2014 með endurskoðuðum útsvarsstofni og á grundvelli viðbótarupplýsinga frá þjónustusvæðum/sveitarfélögum, sbr. 1. lið síðustu mgr. II. hluta. Jafnframt verður áætlunin endurreiknuð í nóvember 2014, sbr. 2.-4. lið síðustu mgr. II. hluta. Við greiðslu framlaga á árinu 2014 fer jafnframt fram leiðrétting framlaga ársins 2012 á grundvelli endanlegs álagningarstofns útsvars 2012.
Útreiknuð framlög ársins 2014 skal leiðrétta þegar endanlegur álagningarstofn útsvars ársins 2014 liggur fyrir. Upplýsingar um leiðréttingu skulu liggja fyrir eigi síðar en 31. desember 2015 og skal leiðrétting framlaga til hvers þjónustusvæðis eða sveitarfélags koma til frádráttar/viðbótar almennum framlögum Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2016. Reynist áætlun ársins 2016 lægri en frádráttur vegna ársins 2014 er heimilt að innheimta mismuninn af öðrum framlögum Jöfnunarsjóðs.
II. hluti: Mæling á útgjaldaþörf.
Við mælingu á útgjaldaþörf vegna þjónustu við fatlaða, sbr. a-lið 1. mgr. I. hluta, skal byggt á þeim upplýsingum um kostnað og stuðningsþörf einstaklinga í sérhæfðri þjónustu sem lagðar voru til grundvallar útreikningi framlaga á árinu 2013.
Við mælinguna skal greina fylgni flokka stuðningsþarfar, sbr. 7. gr., og kostnaðar á einstakling til að ákvarða viðmiðunarfjárhæð fyrir hvern flokk stuðningsþarfar. Ef ekki liggur fyrir mat á stuðningsþörf er heimilt að reikna gildi sem samsvarar flokkum matsins á grundvelli eldra mats. Heimilt er að reikna álag á ákveðna flokka á grundvelli sérstakrar stuðningsþarfar vegna hegðunar. Ennfremur er heimilt að reikna álag vegna einstaklinga með óvenjulega samsetningu stuðningsþarfar.
Útgjaldaþörf skal mæld með eftirfarandi aðferðum:
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skal senda þjónustusvæðum/sveitarfélögum gögn sem sýna kostnað skv. hverjum flokki matsins sem og upplýsingar um niðurstöður útreikninga einstakra þátta framlagsins.
Við mælingu á útgjaldaþörf skv. framangreindu vegna úthlutunar framlaga árið 2014 skal jafnframt taka tillit til eftirfarandi þátta á grundvelli viðbótarupplýsinga frá sveitarfélögum:
Þegar um tímabundna búferlaflutninga einstaklinga í þjónustu er að ræða, er þjónustusvæðum heimilt að semja sín á milli um að framlög Jöfnunarsjóðs vegna þeirra einstaklinga, skv. III. hluta, flytjist milli þjónustusvæða enda þótt lögheimili viðkomandi haldist óbreytt. Slíkir samningar hafa ekki áhrif á jöfnunarframlög samkvæmt þessari reglugerð. Samband íslenskra sveitarfélaga getur gefið út leiðbeinandi viðmið um samninga sem þjónustusvæði gera sín á milli.
III. hluti: Útreikningur framlaga.
Framlög til einstakra þjónustusvæða eða sveitarfélaga skulu reiknuð út sem hér segir:
Almenn framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2014 skulu nema sömu fjárhæð og áætlaðar heildartekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að frádregnum framlögum sem veitt eru til miðlægra verkefna er tengjast yfirfærslunni, framlögum í Fasteignasjóð og sérstökum viðbótarframlögum.
4. gr.
Sérstök viðbótarframlög.
Heimilt er að greiða sérstök viðbótarframlög til þjónustusvæða/sveitarfélaga, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, til að koma til móts við þau svæði þar sem hlutfallsleg lækkun framlaga, milli áranna 2013 og 2014, sbr. 3 gr., er veruleg og um íþyngjandi kostnað þjónustusvæða/sveitarfélaga að ræða við rekstur málaflokksins á árinu umfram tekjur.
Við áætlanagerð almennra framlaga fyrir árið 2014, sbr. 3. gr., skal jafnframt liggja fyrir tillaga ráðgjafarnefndar sjóðsins um áætlað ráðstöfunarfjármagn til greiðslu viðbótarframlaga á árinu.
Viðkomandi þjónustusvæðum/sveitarfélögum ber að sækja um sérstakt viðbótarframlag eigi síðar en 1. nóvember 2014. Forsenda fyrir úthlutun framlags er að með umsókn fylgi ítarleg greinargerð þar sem færð eru rök fyrir þörf þjónustusvæðis/sveitarfélags á sérstöku viðbótarframlagi á árinu.
Jöfnunarsjóður setur verklagsreglur um mat á umsóknum.
5. gr.
Framlög vegna breytingakostnaðar.
Á árinu 2014 greiðir Jöfnunarsjóður sveitarfélaga framlag vegna breytingakostnaðar til Sambands íslenskra sveitarfélaga sem nemur 0,14% af tekjum sjóðsins í formi 0,99% hlutdeildar í útsvarsstofni, sbr. 1. gr., vegna kostnaðar Sambandsins við verkefni er tengjast þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk á árinu.
Með framlögum vegna breytingakostnaðar er að öðru leyti heimilt að greiða eftirfarandi kostnað vegna:
Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga gerir tillögu til ráðherra um úthlutun framlaga á grundvelli a- til f-liða.
6. gr.
Framlög vegna notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA).
Við tillögugerð ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun framlaga til NPA skal taka mið af áætlun verkefnisstjórnar NPA að fenginni umsögn samráðsnefndar um málefni fatlaðs fólks.
Á árinu 2014 er eingöngu til ráðstöfunar til NPA óráðstafað fjármagn vegna verkefnisins á árinu 2013.
7. gr.
Mat á stuðningsþörf.
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur forgöngu um samræmt mat á stuðningsþörf á landsvísu, semur við matsaðila um framkvæmd matsins og ber kostnað af því. Heimilt er að ákveða að greiðsla kostnaðar takmarkist við mat á tilteknum fjölda einstaklinga.
Þjónustusvæði og sveitarfélög fela matsaðila, skv. 1. mgr. framkvæmd matsins á grundvelli ákvæða laga um málefni fatlaðs fólks og er Jöfnunarsjóði sveitarfélaga heimilt að krefja matsaðila, þjónustusvæði og sveitarfélög um niðurstöður slíks mats.
Jöfnunarsjóður setur verklagsreglur um mat á stuðningsþörf, sem m.a. kveða á um hlutverk og verkefni einstakra aðila sem koma að matsferlinu. Heimilt er að skipa sérstaka ráðgefandi vinnuhópa til að fjalla um álitaefni varðandi niðurstöður matsins. Álit slíkra hópa fela ekki í sér stjórnvaldsákvarðanir.
8. gr.
Staðfesting.
Tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutanir framlaga á grundvelli þessarar reglugerðar skulu hljóta staðfestingu ráðherra. Við setningu verklagsreglna skal hafa samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga.
9. gr.
Gildistaka og endurskoðun.
Reglugerð þessi er sett á grundvelli 13. gr. a. í lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum og gilda ákvæði hennar frá 1. janúar 2014. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2013 nr. 623/2013.
Endurskoða skal reglugerð þessa eigi síðar en 15. október 2014.
Innanríkisráðuneytinu, 6. mars 2014.
Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Ragnhildur Hjaltadóttir.