Prentað þann 1. apríl 2025
411/2008
Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um sameiginlegt innkaupaorðasafn vegna opinberra innkaupa.
1. gr.
Við gerð og birtingu tilkynninga og auglýsinga um opinber innkaup og samninga, sbr. 78.-81. gr. laga um opinber innkaup nr. 84/2007, ber að hafa hliðsjón af sameiginlegu innkaupaorðasafni fyrir opinber innkaup (Common Procurement Vocabulary) sem vísað er til í þeim reglugerðum sem tilgreindar eru í 2. og 3. gr.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirfarandi reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem gilda skulu á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar:
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2195/2002 frá 5. nóvember 2002 um sameiginlegt innkaupaorðasafn (CPV), sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 180/2003 frá 5. desember 2003 um breytingu á XVI. viðauka (Opinber innkaup) samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2151/2003 frá 16. desember 2003 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2195/2002 um sameiginlegt innkaupaorðasafn (CPV), sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2004 frá 8. júní 2004 um breytingu á XVI. viðauka (Opinber innkaup) samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 213/2008 frá 28. nóvember 2007 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2195/2002 um sameiginlegt innkaupaorðasafn (CPV) og tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/17/EB og 2004/18/EB um reglur um opinber innkaup, að því er varðar endurskoðun á sameiginlega innkaupaorðasafninu (CPV), sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 14/2010 frá 29. janúar 2010 um breytingu á XVI. viðauka (Opinber innkaup) samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.
3. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2195/2002 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 15/2006, 23. mars 2006, bls. 226.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 180/2003 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 15/2004, 25. mars 2004, bls. 19.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2151/2003 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 9/2007, 22. febrúar 2007, bls. 86.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2004 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 59/2004, 25. nóvember 2004, bls. 14.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 213/2008 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 64/2010, 18. nóvember 2010, bls. 587.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 14/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 19/2010, 22. apríl 2010, bls. 26.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 78. gr. laga nr. 84/2007, um opinber innkaup, öðlast þegar gildi.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.