1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla, II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 105/2012 frá 16. júní 2012 öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:
2. gr.
Eftirfarandi viðbætur verða á efnisákvæðum reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008:
Þrátt fyrir ákvæði vii, a-liðar, 2. tl., 3. gr. telst ammóníumklóríð til matvælaaukefna. Við eftirfarandi matvælaflokka bætist aukefnið ammóníumklóríð (510) með hámarksgildum og takmörkunum eins og hér segir:
Matvælaflokkur |
Hámarksgildi |
Takmarkanir/undanþágur |
|
5.2. |
Annað sælgæti, þ.m.t. smátöflur sem gefa frískandi andardrátt |
80 g/kg |
|
5.3. |
Tyggigúmmí |
80 g/kg |
|
14.1.4 |
Bragðbættar drykkjarvörur |
25 g/l |
Aðeins í drykkjarblöndur ætlaðar til íblöndunar með áfengi |
14.2.6 |
Brenndir drykkir eins og skilgreint er í reglugerð (EB) nr. 110/2008 |
25 g/l |
|
14.2.8 |
Aðrir áfengir drykkir, þ.m.t. blöndur úr áfengum og óáfengum drykkjum og brenndir drykkir með alkóhólinnihald undir 15% |
25 g/l |
3. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.
6. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. Ákvæði II. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1333/2008, eins og henni er breytt með reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1129/2011, gilda frá 1. júní 2013. Jafnframt fellur úr gildi þann 1. júní 2013 reglugerð nr. 285/2002 um aukefni í matvælum.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. október 2012.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Eggert Ólafsson.