1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 111/2011 frá 1. nóvember 2011 öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:
1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 568/2010 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 767/2009 að því er varðar bann við því að prótínafurðir úr yrkjum hvítsveppagers (Candida), sem ræktað er á n-alkönum, séu settar á markað eða notaðar í fóður. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 2. febrúar 2012, bls. 365.
2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 939/2010 um breytingu á IV. viðauka við reglugerð (EB) nr. 767/2009 að því er varðar leyfileg vikmörk í merkingum um samsetningu fóðurefna eða fóðurblandna eins og um getur í 5. mgr. 11. gr. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 2. febrúar 2012, bls. 385.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
5. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. febrúar 2012.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Indriði B. Ármannsson.