Prentað þann 29. mars 2025
1013/2001
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 341/2001 um geislun matvæla með jónandi geislun.
1. gr.
Viðauki I við reglugerðina orðast svo:
VIÐAUKI 1
1. SKAMMTAMÆLINGAR.
Meðaltals geislaskammtur.
Við mat á heilnæmi matvæla sem hafa verið geisluð með að meðaltali 10 kGy geislaskammti eða lægri má gera ráð fyrir að öll efnafræðileg áhrif vegna geislunar á þessu tiltekna orkusviði séu í réttu hlutfalli við stærð geislaskammtsins.
Meðalgeislaskammtur, D, er skilgreindur sem tegur heildarmassa matvælanna:
1 | ||
![]() | M ![]() |
þar sem | M = heildarmassi geislaðs sýnis; |
p = eðlismassi á staðbundnu svæði (x,y,z); | |
d = geislaskammtur á staðbundnu svæði (x,y,z); | |
dV = dx dy dz, hið örsmáa rúmmál sem í raunverulegum tilfellum er lýst með rúmmálsbrotum. |
Í einsleitum einingum matvæla og stórum pakkningum með einsleitan eðlismassa má reikna meðaltals geislaskammt með því að framkvæma geislamælingar á lykilstöðum og jafnframt handahófsmælingar í öllu rúmmáli matvælanna. Út frá slíkum staðalmælingum má reikna dreifingu geislaskammta og fá út meðalgeislaskammt.
Þegar dreifing geislaskammta er þekkt er hægt að áætla staðsetningu hámarks- og lágmarksgeislaskammta. Með því að mæla geislaskammta í þessum punktum í sambærilegum matvælasýnum má áætla meðalgeislaskammt.
Í sumum tilvikum gefa meðalgildi lágmarks- D(min) og hámarksgeislaskammts (
max) góða nálgun á meðalgeislaskammti:
![]() ![]() | ||
Meðalgeislaskammtur ![]() | 2 |
Hlutfall má þó ekki vera hærra en 3.
2. | AÐFERÐIR. |
Staðalmælingar. | |
2.1. | Áður en hafist er handa við reglubundna geislun tiltekinna matvæla á geislunarstöð skal finna þá punkta þar sem hámarks- og lágsmarksgeislaskammtar eru með því að framkvæma mælingar í öllu rúmmáli matvælanna. Mælingarnar skal framkvæma nógu oft (þ.e. 3-5 sinnum) til að taka tillit til frávika í eðlismassa og lögun matvælanna. |
2.2. | Staðalmælingar skal endurtaka í hvert sinn sem veruleg breyting verður á lögun matvælanna eða á skilyrðum við geislun á geislunarstöð. |
2.3. | Á meðan á geislun stendur skulu fara fram reglubundnar mælingar til að tryggja að ekki sé geislað umfram leyfilegan hámarksgeislaskammt. Mælingarnar skulu framkvæmdar með því að staðsetja geislamæla í þeim punktum sem ákvarðaðir eru samkvæmt 2.1. eða á öðrum viðmiðunarstöðum. Velja má aðra viðmiðunarpunkta í eða á matvælunum, á aðgengilegum stöðum þar sem frávik eru lítil, ef samband þeirra við fyrrgreinda mælipunkta er þekkt. |
2.4. | Framkvæma skal reglubundnar mælingar með hæfilegum tímafresti á hverri lotu matvæla og við hverja geislun. |
2.5. | Þegar geisluð eru óinnpökkuð fljótandi matvæli er ekki hægt að staðsetja lágmarks- og hámarksgeislaskammta. Þá er árangursríkara að staðsetja mælipunkta af handahófi til að staðfesta hámarks og lágmarksgildi. |
2.6. | Mælingar á skammtastærðum skal framkvæma með kvörðuðum geislamælingabúnaði og niðurstöður skal byggja á samanburði við viðurkennda frumstaðla. |
2.7. | Á meðan á geislun stendur skal vera hægt að stýra ákveðnum breytum í geislunarstöð og þær skulu skráðar að staðaldri. Þegar notaðar eru geislavirkar samsætur skulu m.a. eftirfarandi breytur skráðar: ferðahraði matvælanna, tími í geislasviði og staðfesting á réttri staðsetningu geislalindar. |
Þegar notaðar eru rafeindir eða röntgengeislar skulu m.a. eftirfarandi breytur skráðar: ferðahraði matvælanna, orka geislunar, rafstraumur og vídd skanna. |
VIÐAUKI 2
Matvæli sem meðhöndla má með jónandi geislum og hámarks
leyfilegir geislaskammtar.*
Matvæli | Hámarks leyfilegur geislaskammtur (kGy) |
Þurrkaðar kryddjurtir, krydd og grænmetiskrydd | 10 |
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 18. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin er sett með hliðsjón af XII. kafla II. viðauka EES-samningsins (tilskipanir 2/1999 og 3/1999).
Reglugerðin öðlast gildi við birtingu.
Umhverfisráðuneytinu, 31. desember 2001.
F. h. r.
Magnús Jóhannesson.
Ingimar Sigurðsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.