Prentað þann 29. mars 2025
931/2012
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 539/2000, um heimildir dýralækna til að ávísa lyfjum.
1. gr.
3. tölul. 9. gr. verður svohljóðandi:
-
Bólgueyðandi stungulyf sem ekki eru sterar (NSAID). Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er dýralækni, sem gert hefur þjónustusamning skv. 5. gr. reglugerðar nr. 353/2011 um aðbúnað og heilbrigði svína, heimilt að ávísa eiganda þess svínabús, sem samningurinn gildir fyrir, slíku lyfi til notkunar í vöðva í eftirfarandi tilvikum:
- til að draga úr verkjum eftir geldingu grísa og eftir klippingu skotta grísa, sbr. 3. mgr. 12. gr. reglugerðar nr. 353/2011 um aðbúnað og heilbrigði svína og bráðabirgðaákvæði við sömu reglugerð, enda hafi dýraeigandi leyfi Matvælastofnunar til þessa,
- við liðabólgu án sýkinga hjá svínum, og
- sem bólgueyðandi og hitalækkandi stuðningsmeðferð í tengslum við lungnabólgu og gothita (MMA (mastitis, metritis, agalactia)) hjá svínum ásamt viðeigandi sýklalyfjameðferð.
Þá er dýralækni einnig heimilt að ávísa dýraeiganda slíku lyfi við verkjum í júgri minkalæðu eftir got og á mjólkurskeiði þeirra.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr., sbr. 49. gr. lyfjalaga, nr. 93/1994, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Velferðarráðuneytinu, 22. október 2012.
Guðbjartur Hannesson.
Vilborg Ingólfsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.