1. gr.
3. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Skilgreind veiðisvæði sæbjúgna eru eftirfarandi, enda uppfylli veiðisvæði skilyrði Matvælastofnunar um heilnæmi afurða á fyrirhuguðu veiðitímabili:
1. Austurland:
2. Faxaflói:
3. Aðalvík:
Veiðar eru heimilaðar utan skilgreindra veiðisvæða, enda uppfylli veiðisvæði skilyrði Matvælastofnunar um heilnæmi afurða á fyrirhuguðu veiðitímabili. Ekki er heimilt í einni og sömu veiðiferð að veiða innan skilgreinds veiðisvæðis og utan.
Við veiðar á sæbjúgum skal plógstærð ekki fara yfir 2,5 m. Þá er lágmarksmöskvastærð netpoka 100 mm.
2. gr.
Reglugerð þessi er gefin út með stoð í lögum nr. 79/1997 um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. maí 2014. |
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, |
Jóhann Guðmundsson. |
Baldur P. Erlingsson.