1. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 2023/2006 frá 22. desember 2006, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 103/2007, frá 29. september skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, II. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans.
2. gr.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2023/2006 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt nema annað sé ákvarðað samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum.
4. gr.
Með brot gegn reglugerð þessari skal farið samkvæmt lögum um matvæli, nr. 93/1995.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 12. júní 2008.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)