1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 215/2014, frá 1. nóvember 2014, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 212/2014 frá 6. mars 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1881/2006 að því er varðar hámarksgildi fyrir aðskotaefnið sítrínín í fæðubótarefnum sem eru að stofni til úr hrísgrjónum gerjuðum með rauðu geri (Monascus purpureus). Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73, frá 4. desember 2014, bls. 457.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 22/1995 um matvæli.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.
5. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. febrúar 2015. |
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, |
Ólafur Friðriksson. |
Eggert Ólafsson.