1. gr.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á II. hluta í viðauka um hleypt kasein fyrir matvæli:
Nýr c-liður orðast svo:
c) |
Tæknileg hjálparefni sem eru leyfileg við framleiðslu: |
||
- |
ostahleypir sem uppfyllir kröfur reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1332/2008 frá 16. desember 2008 um ensím í matvælum, |
||
- |
önnur ensím til að hleypa mjólk sem uppfylla kröfur reglugerðar nr. 1332/2008. |
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum um matvæli, nr. 93/1995, með síðari breytingum og til innleiðingar á 19. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1332/2008 um ensím í matvælum og um breytingu á tilskipun ráðsins 83/417/EBE, reglugerð ráðsins (EB) nr. 1493/1999, tilskipun 2000/13/EB, tilskipun ráðsins 2001/112/EB og reglugerð (EB) nr. 258/97. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 18. október 2011.
Jón Bjarnason.
Baldur P. Erlingsson.