398/2013
Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 978/2011 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 um aukefni í matvælum.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 232/2012 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar skilyrði fyrir notkun kínólínguls (E104), sólsetursguls FCF/appelsínuguls S (E 110) og ponseau 4R/kókínílrauðs A (E 124) og magnið sem er heimilt að nota. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 207/2012, frá 8. desember 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 9, frá 7. mars 2013, bls. 329.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 380/2012 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar skilyrði fyrir notkun matvælaaukefna sem innihalda ál og magnið sem er heimilt að nota. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 6/2013, frá 2. febrúar 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20, frá 28. mars 2013, bls. 903.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 470/2012 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun pólýdextrósa (E 1200) í bjór. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 6/2013, frá 2. febrúar 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16, frá 14. mars 2013, bls. 222.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 471/2012 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun lýsósíms (E 1105) í bjór. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 6/2013, frá 2. febrúar 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16, frá 14. mars 2013, bls. 225.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 472/2012 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun glýserólestera af trjárósíni (E 445) til prentunar á sælgæti með harðri húð. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 6/2013, frá 2. febrúar 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16, frá 14. mars 2013, bls. 228.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 570/2012 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun bensósýru - bensóata (E 210-213) í óáfengum hliðstæðum við vín. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 34/2013, frá 16. mars 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20, frá 28. mars 2013, bls. 505.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 583/2012 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun pólýsorbata (E 432-436) í kókosmjólk. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 34/2013, frá 16. mars 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20, frá 28. mars 2013, bls. 508.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 675/2012 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun talkúms (E 553b) og karnúbavax (E 903) á lituð, soðin egg í skurn og notkun skellakks (E 904) á soðin egg í skurn. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 34/2013, frá 16. mars 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20, frá 28. mars 2013, bls. 513.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.
5. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. apríl 2013.
F. h. r.
Halldór Runólfsson.
Eggert Ólafsson.