1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla, II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 175/2014, frá 26. september 2014, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 119/2014 frá 7. febrúar 2014 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/46/EB og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1925/2006 að því er varðar krómauðgað ger, sem er notað til framleiðslu á fæðubótarefnum, og króm(III)laktattríhýdrat sem er bætt í matvæli. Reglugerðin birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, 30. október 2014, bls. 235.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. október 2014. |
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, |
Ólafur Friðriksson. |
Eggert Ólafsson.