Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1055/2012

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra tollkvótum samkvæmt sérstökum samningi milli Íslands og Noregs um viðskipti með landbúnaðarvörur og á grundvelli viðauka IV A við tollalög, nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993. Reglugerð þessi gildir um innflutning á smurosti frá Noregi og með upprunavottorð þaðan.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Úr tollskrárnr.

kg

%

kr./kg

0406.3000

Smurostur

01.01. - 31.12.13

13.000

0

0

Tímabil það sem tilgreint er miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabilsins.

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, sem birt er á heimasíðu þess, þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar. Heimilt er að úthluta tollkvótum í einu lagi eða skipta úthlutun niður á gildistíma reglugerðarinnar. Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur hverju sinni, skal láta hlutkesti ráða úthlutun tollkvóta vörunnar.

Úthlutun skv. 1. mgr. er ekki framseljanleg.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2013.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. nóvember 2012.

F. h. r.

Ólafur Friðriksson.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica