1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 42/2008 frá 1. maí 2010 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 646/2007 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2160/2003 að því er varðar markmið Bandalagsins sem sett eru til að draga úr algengi Salmonella enteritidis og Salmonella typhimurium í holdakjúklingum og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 1091/2005.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 646/2007 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 59, frá 27. október 2011, bls. 413.
3. gr.
Þrátt fyrir afmörkun gildissviðs reglugerðar nr. 1168/2006 við Salmonella enteritidis og Salmonella typhimurium skulu efnisákvæði reglugerðarinnar taka til allra sermisgerða salmonellu.
4. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.
5. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
6. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 10. gr. laga nr. 96/1997 um eldi og heilbrigði sláturdýra, slátrun, vinnslu, heilbrigðisskoðun og gæðamat á sláturafurðum og 29. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, og öðlast gildi 1. nóvember 2011.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 27. október 2011.
Jón Bjarnason.
Baldur P. Erlingsson.