1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 133/2007 frá 1. maí 2010 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 494/98 um nákvæmar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 820/97 að því er varðar beitingu vægustu stjórnsýsluviðurlaga í tengslum við kerfi um auðkenningu og skráningu nautgripa.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 494/98 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Líta ber á tilvísanir í reglugerð ráðsins (EB) nr. 820/97 í þessari reglugerð og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 494/98 sem tilvísanir í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1760/2000 og skulu tilvísanir lesnar í samræmi við samsvörunartöflu í viðaukanum við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1760/2000.
4. gr.
Tilvísanir í reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 494/98 er varða ákvæði í hinni sameiginlegu landbúnaðarlöggjöf Evrópusambandsins (CAP) gilda ekki við framkvæmd reglugerðar þessarar.
5. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.
6. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
7. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 17. gr. laga nr. 103/2002 um búfjárhald o.fl., og 29. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, og öðlast gildi 1. nóvember 2011.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 11. október 2011.
Jón Bjarnason.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)