871/2013
Reglugerð um (14.) breytingu á reglugerð nr. 672/2008 um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 592/2012 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir bífenasat, kaptan, sýpródiníl, flúópíkólíð, hexýþíasox, ísópróþíólan, metaldehýð, oxadixýl og fosmet í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 58/2013, frá 4. maí 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, frá 16. maí 2013, bls. 158.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 897/2012 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir asíbensólar-S-metýl, amísúlbróm, sýasófamíð, díflúfeníkan, dímoxýstróbín, metoxýfenósíð og nikótín í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 57/2013, frá 4. maí 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, frá 16. maí 2013, bls. 51.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 899/2012 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir asefat, alaklór, anilasín, asósýklótín, benfúrakarb, bútýlat, kaptafól, karbarýl, karbófúran, karbósúlfan, klórfenapýr, klórþaldímetýl, klórþíamíð, sýhexatín, díasínón, díklóbeníl, díkófól, dímetípín, díníkónasól, dísúlfótón, fenítróþíón, flúfensín, fúraþíókarb, hexakónasól, laktófen, mepróníl, metamídófos, metópren, mónókrótófos, mónúrón, oxýkarboxín, oxýdemetónmetýl, paraþíónmetýl, fórat, fosalón, prósýmídón, prófenófos, própaklór, kínklórak, kvintósen, tólýlflúaníð, tríklórfón, trídemorf og tríflúralín í eða á tilteknum afurðum og breytingu á þeirri reglugerð með samningu V. viðauka þar sem skráð verða staðalgildi. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 57/2013, frá 4. maí 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, frá 16. maí 2013, bls. 82.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.
5. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. september 2013.
|
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
|
Halldór Runólfsson.
|
Eggert Ólafsson.